HSK mótið í blaki unglinga fór fram í íþróttahúsinu á Hvolsvelli föstudaginn 24. apríl sl. Dímon, Hamar, Laugdælir og Hvöt sendu vösk lið til leiks og stóðu allir leikmenn sig með mikilli prýði á vellinum.
Dímon A og Dímon B kepptu í stúlknaflokki og fór það svo að lokum að Dímon A fór með sigur af hólmi og urðu þar með HSK meistarar. Því miður náðist ekki mynd af stúlkunum í B liðinu.

Dímon A, Dímon B, Laugdælir, Hamar með blandað lið og Hvöt með blandað lið kepptu í drengjaflokki og þar var það Dímon A sem urðu HSK meistarar, Laugdælir urðu í öðru sæti og Hamar í því þriðja. Sjá mátti frábæra takta á vellinum og öll lið gátu farið sátt frá borði eftir góða baráttu.



