Héraðsmót í borðtennis 2021

46. héraðsmót  HSK í borðtennis verður haldið á Hvolsvelli laugardaginn 20. nóvember 2021. 

 

Vegna Covid fjöldatakmarkana að þá hefur tímaseðill verið hér með uppfærður!

Keppni hefst kl. 11:00 hjá flokkum 11 ára og yngri og 13 ára og yngri. Keppni hjá eldri flokkum hefst kl. 14:00.

 

 

Flokkaskipting: 

Keppt verður í eftirtöldum karla- og kvennaflokkum, miðað er við almanaksárið:

40 ára og eldri         (1981 og fyrr)

18 ára og eldri          (2003 og  fyrr)

16 - 17 ára            (2004- 2005)

14 - 15 ára         (2006 - 2007)

12 - 13 ára            (2008 - 2009)

11 ára og yngri        (2010 og síðar)

 

Skráningarfrestur: 

Skráningar þurfa að berast til nefndarmanna í borðtennisnefnd HSK í síðasta lagi fimmtudaginn 18. nóv nk. Vinsamlegast  tilkynnið þátttöku með tölvupósti á hsk@hsk.is eða olieli@simnet.is

 

Þátttökugjald:

Þátttökugjald fyrir 12 ára og eldri er kr. 800 á skráð nafn í grein og kr. 500 fyrir 11 ára og yngri. Innifalið í þátttökugjaldi eru borðtenniskúlur sem notaðar verða á mótinu.

 

Verðlaun: 

Fjórir fyrstu í hverri grein hljóta verðlaunapening og stigahæsta félag hlýtur farandgrip. Allir 11 ára og yngri fá þátttökuverðlaunapening.

 

Þátttakendur mæta með eigin borðtennisspaða á mótið.

 

Borðtennisnefnd HSK