Punktamót Dímonar í borðtennis var haldið á Sumardaginn fyrsta

Punktamót Íþr.fél Dímonar vað haldið að venju á Sumardaginn fyrsta á Hvolsvelli.
Til leiks mættur 25 keppendur sem allir luku keppni. Keppt var í öðrum flokki kvenna og
karla. Mótið hófst kl. 11:00 og því lauk kl. 15:00
sigurveigari í kvennaflokki var Lára Ívarsdóttir KR.
Annað sæti hlaut Kristín Ingibjörg Magnúsdóttir KR.
þriðja til fjórða sæti urðu Þuríður Þöll Bjarnadóttir KR. og Alexia Kristínardóttir Mixa BH.
Í Karlaflokki varð sigurveigari Eiríkur Logi Gunnarsson KR.
Í öðru sæti varð Guðmundur Halldórsson KR.
Í þriðja til fjórða sæti urðu Agnes Brynjarsdóttir Víking og Kamil Mocek víking.
Sigurveigararnir í hvorum flokki hlutu auk þess gjafabréf hestaferð á Njáluslóðir frá Lárusi Ág.
Bragasyni , 16 tommu pizzu í Björkinni á Hvolsvelli og tíu miða sundkort í sundlaugina á
Hvolsvelli. Mótið tókst í alla staði vel og fóru keppendur glaðir út í sumarið. Þökkum
öllum þeim sem aðstoðuðu við framkvæmd mótsins.

Fh. Borðtennisdeildar Dímonar Ólafur Elí og Ásta Laufey

Deild: