Samfella komin í sumarfrí en æfingar í einhverjum greinum halda áfram, sjá hér:
Formlegt samfellustarf er nú búið og ekki er lengur skólabíll kl 17, en nokkrar æfingar halda eitthvað áfram, hér má sjá yfirlit yfir það:
Sund
Sundæfingar halda áfram þessa viku, mánudag 6. maí og fimmtudag 9. maí og í næstu viku, mánudag 13. maí og fimmtudag 16. maí.
Taekwondo:
Æfingar á mánudögum eru komnar í frí en það verða æfingar á föstudögum á sömu tímum og venjulega næstu tvær vikur, föstudaginn 10. maí og föstudaginn 17. maí
Fimleikar:
Þar sem samfellan er komin í sumarfrí verða ekki fimleikar hjá samfelluhópnum (miðvikudaga kl.13:20-14 ) En það halda áfram æfingar hjá hópi 3 og hópi 4 eitthvað fram að skólaslitum.
Frjálsar eldri (5.-10. bekkur)
Æfingar verða út maí á miðvikudögum, þar sem marga rsamfelluæfingar eru búnar komumst við fyrr í salinn og getum líka farið út langar mig að hafa æfingarnar í maí kl 16 og 17:30. Vormót HSK fyrir ykkur eldri er 20 maí. Eyrún
Sumarfrí er hafið í:
Frjálsum og leikjum 1.-4. bekkur, Fimleikum á miðvikudögum kl 13:20-14, Glímu, Blaki, Borðtennis, Badminton og Styrk 5.-7. bekkur.