LÖG ÍÞRÓTTAFÉLAGSINS
Lög fyrir íþróttafélagið Dímon.
1. grein
Félagið heitir Íþróttafélagið Dímon. Heimili þess og varnarþing er Íþróttamiðstöðin á Hvolsvelli.
Starfssvæði þess er Rangárvallasýsla. Þó er félagsaðild ekki bundin við þetta svæði.
Félagið er myndað af einstaklingum samkvæmt sérstakri spjaldskrá. Sameiginleg aðalstjórn er æðsti aðili félagsins milli funda.
Félagi er:
a) Einstaklingur sem sótt hefur um inngöngu í félagið og fengið samþykki aðalstjórnar eða stjórnar deildar.
b) Hver sá einstaklingur sem stundar æfingar eða keppir á vegum félagsins.
c) Einstaklingur sem sótt hefur um inngöngu í félagið sem styrktarfélagi og fengið samþykki aðalstjórnar eða stjórnar deildar. Styrktarfélagi skal undanþeginn öllum skyldum innan félagsins og er ekki kjörgengur til neinna embætta innan félagsins.
2. grein
Markmið félagsins er að taka yfir íþróttastarfsemi ungmennafélaganna: Baldurs, Dagsbrúnar, Njáls, Þórsmerkur og Trausta og jafnframt stuðla að eflingu íþróttastarfs á þessu svæði.
Markmiðum sínum hyggst félagið ná með fundahöldum, námskeiðum, íþróttaæfingum, félagsstarfi, keppni og ýmsu sem best þykir á hverjum tíma.
3. grein
Málefnum félagsins stjórna:
a) Aðalfundur
b) Aðalstjórn
Reikningsár félagsins og deilda þess er almanaksárið.
4. grein
Aðalfundur fer með æðsta vald í málefnum félagsins. Seturétt á aðalfundi, með málfrelsi og tillögurétt, eiga allir félagar, og atkvæðisrétt allir félagar 18 ára (á árinu) og eldri. Þeir síðarnefndu eru kjörgengir til allra embætta hjá félaginu, nema til formanns, gjaldkera og skoðunarmanna, þar sem þeir skulu vera fullra 18 ára. Aðalfund skal halda ár hvert fyrir Héraðsþing HSK. Hann skal boða skriflega með minnst viku fyrirvara. Aðalfundur telst löglegur sé löglega til hans boðað. Á aðalfundum, sem annars staðar, hefur hver félagsmaður 1 atkvæði. Einfaldur meirihluti ræður ákvörðunum, nema um sé að ræða lagabreytingar, þá þarf 2/3 hluta til.
Aðalfundur ákveður upphæð árgjalds og þau aldursmörk sem innheimta skal miðast við. Kaup og sala fasteigna félagsins skal háð aðalfundarsamþykkt.
Aðalfundur setur aðalstjórn erindisbréf og aðalstjórn deildarstjórnum erindisbréf, þar sem fram koma meginverkefni stjórnanna.
5. grein
Aukafundi skal halda svo oft sem þurfa þykir að mati stjórnar eða að 1/10 félagsmanna krefjist þess.Ekki má gera lagabreytingar á aukafundum. Að öðru leyti gilda sömu reglur og um aðalfund, nema hvað fyrirvari boðunar þarf ekki að vera meiri en 4 dagar.
6. grein
Aðalfundur-Störf,dagskrá:
1. Formaður setur fund.
2. Kosnir starfsmenn fundarins.
3. Fundargerð síðasta aðalfundar lögð fram til samþykktar.
4. Skýrsla stjórnar lögð fram.
5. Stjórn leggur fram endurskoðaða reikninga félagsins og einstakra deilda á liðnu ári.
6. Umræður um skýrslur og reikninga og afgreiðsla þeirra.
7. Fjárhagsáætlun næsta árs.
8. Ákvörðun um árgjöld.
9. Verðlunaafhending.
10. Stjórnarkjör. 5 manna stjórn, 3 til vara.
11. Kosnir 2 skoðunarmenn og 2 til vara.
12. Kosnir fulltrúar á HSK þing.
13. Lagabreytingar.
14. Önnur mál.
15. Fundi slitið.
7. grein
Kosningar skulu að öðru jöfnu vera leynilegar. Þó er heimilt að leggja fram tillögur aðskipun í embætti hvort sem er frá kjörnefnd (sem skipuð er af aðalstjórn) eða einstaklingum. Þá er fundarstjóra skylt að óska eftir fleiri tilnefningum. Komi þær ekki er sjálfkjörið í viðkomandi embætti, annars skal kjósa milli tilnefndra leynilegri kosningu.
8. grein
Aðalststjórn er skipuð fimm mönnum sem kosnir eru beinni kosningu á aðalfundi; formanni, gjaldkera, ritara sem jafnframt er varaformaður og tveimur meðstjórnendum.
Kjörtímabil þeirra skal vera tvö ár. Þó skal kjörtímabil fyrsta ritara og formanns félagsins vera eitt ár frá fyrsta aðalfundi. Eigi skal hver stjórnarmaður sitja lengur en þrjú kjörtímabil samfellt. Ofangreindum stjórnarmönnum er heimilt að sitja í stjórn einnar deildar innan félagsins, en ekki þó gegna formennsku þar. Að auki starfa með aðalstjórn með málfrelsi og tillögurétt formenn allra starfandi deilda eða fulltrúar þeirra.
Meirihluti ræður úrslitum mála í aðalstjórn. Fastar tekjur félagsins sem aðalstjórn ráðstafar eru:
. Árgjald félagsmanna.
. Sölulaun af getraunum innan félagsins, Lottóúthlutun og aðrar fjáraflanir á vegum íþróttahreyfingarinnar.
. Ágóði af sameiginlegum fjáröflunum félagsins.
. Öðrum tekjuöflunum sem ekki koma inn á svið deilda.
. Framlög og styrkir.
9. grein
Aðalstjórn ber að efla félagið á allan hátt og gæta hagsmuna þess í hvívetna. Meginverkefni aðalstjórnar eru skilgreind í sértöku erindisbréfi sem aðalfundur setur.
(Sjá erindisbréf f. aðalstjórn)
10. grein
Hver deild félagsins hefur sérstaka stjórn og sjálfstæðan fjárhag og hefur tekjur af:
. Æfingagjöldum.
. Styrktarfélagsgjöldum
. Ágóða af mótum/skemmtunum viðkomandi deildar.
. Styrkjum og öðru fjármagni til skipta.
Öðrum fjáröflunum skv. heimild frá aðalstjórn.
Stjórn hverrar deildar skipa 3 menn: formaður, gjaldkeri og ritari og skulu þeir kosnir beinni kosningu á aðalfundi deildar, ásamt 2 til vara. Kjörtímabil deildarstjórnar er tvö ár og skulu kjörtímabil skarast þannig að kosinn er stjórnarmaður og tveir varamenn annað hvert ár, en tveir stjórnarmenn hin árin. Aðalfund deilda skal halda fyrir 25. janúar ár hvert. Heimilt er deildarstjórnum að afla deildinni styrktaraðila.
Deildarstjórnum ber að halda nákvæma spjaldskrá yfir félaga deildarinnar, bæði virka og óvirka. Nýir félagar sem skráðir eru inn í deildir skulu skráðir á þar til gerð eyðublöð “beiðni um félagsaðild” í tvíriti og afritið sent aðalstjórn.
11. grein
Tillögur um að leggja félagið niður má aðeins taka fyrir á löglegum aðalfundi og þarf tillaga þess efnis að hafa borist aðalstjórn 1 viku fyrir aðalfund. Til samþykktar þarf minnst 2/3 hluta atkvæða. Eignir félagsins skulu þá skiptast jafnt á millli ungmennafélaganna; Baldurs, Njáls, Dagsbrúnar, Þórsmerkur og Trausta til uppbyggingar íþróttastarfi á sínum svæðum.
12. grein
Um þau atriði sem ekki eru tekin fyrir í lögum þessum gilda ákvæði í lögum ÍSÍ.
Erindisbréf fyrir aðalstjórn:
. Hún hefur umráðarétt yfir öllum sameiginlegum eignum félagsins og ræður starfsemi þess í samráði við deildarstjórnirnar.
. Hún skal sjá til þess að sjóðir félagsins og deilda þess séu ávaxtaðir í banka eða sparisjóði.
. Hún sér um að framfylgja ákvörðunum aðalfundar.
. Hún hefur heimild til að víkja mönnum úr félaginu álíti hún framkomu þeirra og/eða gjörðir vítaverðar.
. Hún hefur heimild til að skipa nefndir sem þörf er talin á.
. Hún fer með yfirstjórn fjáraflana í nafni félagsins og getur veitt einstökum deildum heimild til að nýta þær.
. Hefur yfirumsjón með niðurröðun í tíma Íþróttafélagsins í íþróttamannvirki og setur reglur um innheimtu æfingagjalda í samráði við deildir.
. Vanræki einhver deild að halda aðalfund á tilsettum tíma skal aðalstjórn boða til fundarins og sjá um framkvæmd hans.
58. Tekur ákvörðun um skiptingu styrkja og annars fjármagns sem félagið hefur aflað.
. Hefur úrskurðarvald í ágreiningsmálum sem upp kunna að koma innan félagsins og til hennar er skotið.
. Hún hefur heimild til að fela einstökum deildum innheimtu árgjalda.
. Hún heldur fundi eigi sjaldnar en annan hvern mánuð og skal um þá haldin sérstök gerðabók.
. Hún ber ábyrgð á útgáfu fréttabréfs á félagssvæðinu, hvort sem hún sér um það sjálf eða felur það öðrum. Stefnt skal að útgáfu 6 sinnum á ári, eða svo oft sem þurfa þykir.
. Hún sér um útgáfu ársskýrslu félagsins samkvæmt upplýsingum sem fyrir liggja frá deildum.
. Hún sér um að halda nákvæma spjaldskrá yfir félaga, þar sem fram kemur í hvaða deild hver og einn er skráður. Þá er einnig heimilt að skrá félaga utan deilda eða í fleiri en eina.
Erindisbréf fyrir stjórnir deilda:
Helstu hlutverk stjórna deilda eru þessi:
. Að setja deildinni markmið til lengri og skemmri tíma. Skulu þau markmið lögð fyrir aðalstjórn og aðalfund deildar til samþykktar.
. Að halda sem best verður á kosið utan um starf deildarinnar þannig að hvetjandi sé til iðkunar,og iðkendum séu sköpuð sem best skilyrði til að stunda íþrótt sína eftir því sem aðstæður leyfa og bæta árangur sinn
. Að beita sér fyrir foreldrastarfi í kringum barna og unglingaíþróttir.
. Að ráða þjálfara eftir því sem þurfa þykir og semja um kjör hans í samráði við aðalstjórn.
. Að skipuleggja æfingar og ákveða æfingagjöld í samráði við aðalstjórn.
. Að sjá um fjáraflanir til að standa straum að rekstri og/eða einstökum verkefnum.
. Að skipuleggja keppnir og keppnisferðir, s.s. með því að skrá og velja í lið.
. Að gæta fjármuna deildarinnar og halda reikning yfir þá. Einnig skal haldin gjörðabók yfir fundi á vegum deildar og skráðir helstu viðburðir á vegum deildarinnar
. Að taka saman skýrslu um starfsemi deildarinnar með skoðuðum reikningum og leggja fyrir aðalfund deildar. Sú skýrsla skal síðan leggjast fram til aðalstjórnar til birtingar í ársskýrslu félagsins.
Gera tillögu að verðlaunaveitingum á vegum deildar, eftir nánari reglum þar um, m.a. um Íþróttamann ársins í viðkomandi grein.
(Eftir breytingar á aðalfundi 19.2.’03)