Dímon sendi 6 keppendur á Íslandsmót unglinga í borðtennis

Helgina 28. feb – 1. mars var Íslandsmót unglinga í borðtennis haldið á Selfossi. Dímon sendi 6 keppendur til leiks sem stóðu sig afar vel.

Marsibil Silja Jónsdóttir náði sér í þrenn verðlaun, hún varð Íslandsmeistari í einliðaleik hnáta 11 ára og yngri. Fékk silfur í tvíliðaleik U13 ára ásamt Guðbjörgu Stellu frá Garp og svo brons í tvenndarleik U13 ára ásamt Val Frey Stefánssyni frá Dímon.

Magnea Furuhjelm Magnúsdóttir fékk silfur í tvíliðaleik 14-15 ára ásamt Þórdísi Gunnarsdóttur úr KR.

Þeir Hrafnar Freyr Leósson og Jökull Pálsson kepptu líka fyrir hönd Dímon í flokki 12 – 13 ára og spiluðu mjög vel.

Fleiri Fréttir