Dímon sigraði stigakeppnina á HSK mótinu í frjálsum íþróttum

Aldursflokkamót HSK í frjálsíþróttum 11-14 ára var haldið í Lindexhöllinni á Selfossi 11. janúar sl. Átta félög af sambandssvæðinu tóku þátt að þessu sinni og sendi Dímon frækið lið til keppni. Svo frækið að þau enduðu með því að sigra heildarstigakeppni mótsins í fjórða sinn í sögu keppninnar, en fyrsta innanhússmót HSK í þessum aldursflokkum var haldið árið 1969. Dímon fékk samtals í 197,5 stig. Lið Selfoss endaði í öðru sæti í stigakeppninni með 158 stig og Þjótandi varð í þriðja sæti með 119,5 stig.

Frábær árangur og unnu krakkarnir í Dímon einnig aldursflokkana 12, 13 og 14 ára.

Úrslit mótsins má sjá hér í nýju mótakerfi FRÍ,

Mynd fengin af vef HSK: Hluti af sigurliði Dímonar á aldursflokkamótinu.

Á sama tíma fór fram Unglingamót HSK þar sem Dímon varð í þriðja sæti og fór Magnea Furuhjelm Magnúsdóttir þar fremst í flokki, tók þátt í 5 greinum í 15 ára aldursflokknum, vann fjórar greinar og varð í öðru sæti í einni grein.

Úrslit Unglingamótsins má finna hér.

Fleiri Fréttir