Dímon/Hekla sendi þrjú lið á HSK mótið í blaki kvenna

Seinni umferð HSK mótsins í blaki kvenna var leikin á Hvolsvelli mánudaginn 9. mars. Dímon/Hekla var með þrjú lið á mótinu í vetur og stóðu þau sig afar vel. Dímon/Hekla A lenti í 2. sæti og Dímon/Hekla B lenti í 3. sæti en Hamar varð HSK meistari að þessu sinni.

Dímon/Hekla C, sem er að mestu skipað nýliðum, lenti í 9. sæti á mótinu en framtíðin er sannarlega björt í meistaraflokki kvenna í blaki hjá liðinu.

Næsta verkefni liðsins er síðasta keppnishelgin á Íslandsmótinu þar sem Dímon/Hekla er með tvö lið. Dímon/Hekla A spilar í 3. deild þar sem leikið verður á Neskaupsstað og Dímon/Hekla B spilar í 5. deild en sú deild leikur í Kópavogi.

Dímon/Hekla A
Dímon/Hekla B

Fleiri Fréttir