Flottur árangur keppenda frá Dímon á MÍ í frjálsum 11 – 14 ára.

Keppendur frá Dímon stóðu sig stórvel þegar þau kepptu undir merkjum HSK/Selfoss á Meistaramóti Íslands 11-14 ára í frjálsum, sem fram fór í Laugardalshöll 31. janúar – 1. febrúar.  Árangur liðsins í heild var eftirtektaverður og gerði lið HSK/Selfoss sér lítið fyrir og fékk 511 stig í heildarstigakeppninni og náði örugglega öðru sæti. Stúlkurnar í 11 og 12 ára flokki voru ötular í stigasöfnuninni og nældu sér í Íslandsmeistaratitilinn með því að sigra í heildarstigakeppninni í sínum aldursflokki.

Karólína Orradóttir stökk hæst allra 12 ára stúlkna í hástökki, varð önnur í 60m spretthlaupi, langstökki og kúluvarpi og vann fimmtarþrautina í hennar flokki nokkuð örugglega. Viktoría Rún Elíasdóttir varð þriðja í hástökki stúlkna 13 ára og Sæþór Elvar Jóhannsson varð þriðji í hástökki 14 ára pilta.

Einn af skemmtilegustu viðburðunum á mótinu eru boðhlaup þar sem stemmingin getur verið rafmögnuð og þar voru sett 2 ný HSK met. Blönduð 12 ára sveit setti einnig HSK met en hún hljóp á 2:13,24 mín og var það þriðja hraðasta sveitin í 12 ára flokki. Í sveitinni voru Karólína Orradóttir, Dímon, Þorbjörg Helga Björgvinsdóttir, Heklu, Þorkell Ólafur Þórbergsson, Þjótanda og Álfheiður Silla Heiðarsdóttir, Dímon.

Til hamingju með frábæran árangur allir keppendur Dímon og Eyrún þjálfari.

Fleiri Fréttir