Keppendur frá Dímon stóðu sig stórvel þegar þau kepptu undir merkjum HSK/Selfoss á Meistaramóti Íslands 11-14 ára í frjálsum, sem fram fór í Laugardalshöll 31. janúar – 1. febrúar. Árangur liðsins í heild var eftirtektaverður og gerði lið HSK/Selfoss sér lítið fyrir og fékk 511 stig í heildarstigakeppninni og náði örugglega öðru sæti. Stúlkurnar í 11 og 12 ára flokki voru ötular í stigasöfnuninni og nældu sér í Íslandsmeistaratitilinn með því að sigra í heildarstigakeppninni í sínum aldursflokki.
Karólína Orradóttir stökk hæst allra 12 ára stúlkna í hástökki, varð önnur í 60m spretthlaupi, langstökki og kúluvarpi og vann fimmtarþrautina í hennar flokki nokkuð örugglega. Viktoría Rún Elíasdóttir varð þriðja í hástökki stúlkna 13 ára og Sæþór Elvar Jóhannsson varð þriðji í hástökki 14 ára pilta.
Einn af skemmtilegustu viðburðunum á mótinu eru boðhlaup þar sem stemmingin getur verið rafmögnuð og þar voru sett 2 ný HSK met. Blönduð 12 ára sveit setti einnig HSK met en hún hljóp á 2:13,24 mín og var það þriðja hraðasta sveitin í 12 ára flokki. Í sveitinni voru Karólína Orradóttir, Dímon, Þorbjörg Helga Björgvinsdóttir, Heklu, Þorkell Ólafur Þórbergsson, Þjótanda og Álfheiður Silla Heiðarsdóttir, Dímon.
Til hamingju með frábæran árangur allir keppendur Dímon og Eyrún þjálfari.


