Aðalfundur íþróttafélagsins Dímonar haldinn í Litla salnum Í Hvolnum á Hvolsvelli 16. Mars 2025 kl:13

1.Fundarsetning

Formaður félagsins Sigurður Kristján Jensson setti fund og bauð fundar gesti velkomna.

2. Starfsmenn fundarins kosnir

Sigurður stakk upp á Sjálfum sér sem fundarstjóra og  Esther Sigurpálsdóttur sem fundarritara. Samþykkt samhljóða

3. Fundargerð síðasta aðalfundar lögð fram til samþykktar

Fundargerð síðasta aðalfundar liggur á heimasíðu félagsins. Fundarstjóri leitar eftir athugasemdum við fundargerð, engar athugasemdir voru gerðar. Skoðast því fundargerð síðasta fundar samþykkt.

4.  Skýrsla Stjórnar

Sigurður formaður les upp skýrslu stjórnar.  

Skýrsla stjórnar 2024 

Stefna félagsins er að bjóða upp á fjölbreytta hreyfingu og að halda gjöldum í lágmarki. Við bjóðum upp á badminton, blak, borðtennis, frjálsar, glímu, körfubolta, rafíþróttir, styrktaræfingar og sund fyrir iðkendur í grunnskóla.

Okkur hefur ekki tekist að halda uppi fimleikum sökum þjálfaraskorts.

Stofnuð var skákdeild 2024 og hafa verið opnir tímar á sunnudögum í Hvolnum frá 11:00-12:30.

Íþróttastarfið er mikilvægur hlekkur í samfélaginu okkur og eru 222 iðkendur hjá Dímon.

Erfiðlega gengur að fá foreldra iðkenda til að taka þátt í starfinu en það er mjög mikilvægt að fá virkja fólk til þáttöku svo starfið geti gengið vel og allt verði auðveldara fyrir alla.

5. Reikningar félagsins lagðir fram

Christiane Bahner gjaldkeri fór yfir skoðaða reikninga félagsins

6. Fundarstjóri gaf orðið laust um skýrslu stjórnar og reikninga félgasins, engin bað um orðið. Fundastjóri bar skýrslu stjórnar og reikninga félagsins upp til samþykktar, samþykkt samhljóða. 

7. Fjárhagsáætlun næsta árs

Gjaldkeri fer yfir fjárhagsáætlun fyrir næsta ár

Fjárhagsáætlun Íþr.fél.Dímonar 2025

Fundarstjóri gefur orðið laust um fjárhagsáætlun félagsins, engin bað um orðið

Fundarstjóri ber fjárhagsáætlun upp til samþykktar, fjárhagsáætlun samþykkt samhljóða.

8. Ákvörðun um árgjöld.

Fundarstjóri kynnir tillögu stjórnar að óbreyttu félagsgjaldi 1500 kr á ári og verði innheimt á 2 ára fresti. Orðið gefið laust engar athugasemdir. Tillagan borin upp til samþykktar, tillagan samþykkt samhljóða.

9. Verðlaunaafhending.

Verðlaunaveitingar fyrir árið 2024 á aðalfundi Dímonar,

Badminton 

Jakob Freyr Ólafsson

Glíma

Glímumaður ársins 2024 í flokki 15-16 ára: Lúkas Týr Sigurðsson

Glímumaður ársins 2024 í flokki 13- 14 ára: Jens Eyvindur Ágústsson og Ármann Þorri Þórisson

Glímumaður ársins 2024 í flokki 11- 12 ára: Þórarinn Breki Þórisson, Viktoría Alba Guðmundsdóttir og Margrét Tryggvadóttir 

Borðtennis  

Franek Nogel, Aleksander Lis, Valur Freyr Stefánsson, Marsibil Silja Jónsdóttir, Viktoría Alba Guðmundsdóttir

Sund 

Sundmaður Dímonar 2024: Lúkas Týr Sigurðsson

Framfarir og ástundun í sundi 2024: Runólfur Mar Þorkelsson

Framfarir og ástundun í sundi 2024:Viktoría Rún Elíasdóttir

Körfubolti  

Körfuboltamaður Dímonar 2024: Ívar Ylur Birkisson

Framfarir og ástundun í körfubolta 2024: Jens Sigurðsson

Ringó

Ringó kona ársins 2024: Kamilla Romancsuk

Ringó maður ársins 2024: Viktor Máni Ólafsson

Frjálsíþróttir

Frjálsíþrótta maður ársins 2024: Ívar Ylur Birkisson

Hlé

10. Stjórnarkjör. 5 manna stjórn, 2 til vara og einn fulltrúi ungafólksins. 

Kjör stjórnar: Fundarstjóri leitar eftir framboðum, engin framboð, fundarstjóri fer yfir tillögu stjórnar að stjórn Dímonar en Oddný Steina Valsdóttir gefur ekki kost á sér og þakkar stjórn henni fyrir vel unnin störf

Sigurður Kristján Jensson formaður

Esther Sigurpálsdóttir ritari og varaformaður 

Christiane L. Bahner gjaldkeri

Ólafur Elí Magnússon meðstjórnandi

Ragnar Rex Jóhannesson meðstjórnandi

Stjórn kjörinn með lófaklappi 

Kjör varamanna: Fundarstjóri fer yfir tillögu stjórnar af varamönnum 

Árni Ólafsson

Jóhann Gunnar Böðvarsson

Fulltrúi unga fólksins

Viktor Máni Ólafsson

Varastjórn kjörin með lófaklappi

11. Kjör tveggja skoðunarmanna og tveggja til vara

Fundarstjóri fer yfir tillögu stjórnar 

Páll Eggertsson og Oddný Steina Valsdóttir sem skoðunarmenn reikninga 

Garðar Guðmundsson og Sigurjón Sváfnisson sem varamenn

Tillaga samþykkt samhljóða

12. Kjör fulltrúa á HSK þing 

Dímon sendir þrjá fulltrúa fyrir sig á þingið. Fundarstjóri óskar eftir framboði, engin framboð. Ákveðið var að stjórn félagsins taki þetta fyrir og finni fulltrúa, samþykkt samhljóða.

14. Önnur mál.

Farið yfir búninga fyrir félagið, ákveðið að vera fyrst með hópapöntun. Í framhaldinu væri hægt að panta sjálfur á síðunni þar sem búningar verða pantaðir. 

Ákveðið að panta dökkbláa hettupeysu, dökkbláa bómullarboli og svo gula upphitunarboli úr polyester síðerma og stutterma. Þessi fatnaður væri merktur Dímon og gengur þá fyrir allar deildir innan Dímonar.

Orðið gefið laust, engin bað um orðið og ekki urðu meiri umræður.

15. Fundi slitið kl:14:27

Fleiri Fréttir