Dímon/Hekla sendi þrjú lið á Öldung

Stærsta blakmót ársins, Öldungur, fór fram í Kópavogi dagana 1.-3. maí þar sem mikill fjöldi blakiðkenda safnaðist saman en þátttökulið voru yfir 160. Í fyrsta sinn sendi Dímon/Hekla þrjú kvennalið til leiks eða 22 konur alls. A-liðið keppti í 5. deild, B-liðið keppti í 6. deild og C-liðið tók þátt í fyrsta sinn og keppti í 10. deild. Það er gríðarlega góður árangur að geta sent þetta stóran hóp keppenda frá ekki stærra félagi og stóðu liðin sig alveg einstaklega vel. Tvenn verðlaun náðust í hús en B-liðið varð í 2. sæti í 6. deildinni og leika því í 5. deild að ári og nýliðarnir í C-liðinu náðu 3. sæti í 10. deildinni.

Öldungur er mót fyrir 30 ára og eldri iðkendur og er þema á hverju móti. Í þetta sinn var þemað ofurhetjur og var Dímon/Hekla með sína útfærslu af Kattarkonunni eins og sjá má á meðfylgjandi myndum.

A-Liðið
B-Liðið
C-Liðið

Fleiri Fréttir

Aldursflokkamót HSK í sundi

Dímon sendi vaska sveit til leiks á aldursflokkamót HSK í sundi sem haldið var í sundlauginni á Hvolsvelli þriðjudaginn 29. apríl sl. Í yngsta flokknum,

HSK mót unglinga í blaki

HSK mótið í blaki unglinga fór fram í Íþróttahúsinu á Hvolsvelli föstudaginn 11. apríl sl. 8 lið mættu til leiks, 5 drengja- og blönduð lið

Dímon sigraði heildarstigakeppni HSK 2024

Íþróttafélagið Dímon náði frábærum árangri í Heildarstigakeppni HSK árið 2024 með því að lenda í 1. sæti með 159 stig. Heildarstigakeppnin samanstóð af 28 héraðsmótum