Ívar Ylur Birkisson Íslandsmeistari í 60m grind

Ívar Ylur Birkisson varð Íslandsmeistari fullorðinna á nýju HSK meti í 60 m grindarhlaupi á Meistaramóti Íslands sem fór fram um síðustu helgi í Laugardalshöll. Hann hljóp á 8,45 sek sem er HSK met í flokki 18-19 ára en hann nálgast Íslandsmetið í sínum flokki og HSK met karla.

Magnea Furuhjelm Magnúsdóttir stóð sig líka vel á Meistaramótinu en hún varð í 6 sæti í Langstökki með stökk upp á 5,06 m en það gífurlega góður árangur að ná inn í úrslit á Meistaramóti fullorðinna.

Til hamingju bæði tvö.

Fleiri Fréttir