Aðalfundur 2020
Aðalfundur Íþróttafélagsins Dímonar haldinn í Hvolsskóla 23.2.2020
1. Formaður Arnheiður setti fundinn um kl:14:00 og bauð fundargesti velkomna.
2. Arna stakk upp á sér sem fundarstjóra og Óskari Magnússyni sem fundarritara og var það samþykkt.
3. Inga Birna ritari stjórnar las upp fundargerð síðasta aðalfundar. Arna spurði um ath.semdir við aðalfundargerð , sem voru ekki og fundargerð samþykkt.
4. Arna formaður Dímonar las upp skýrslu stjórnar. Arna lagði fram skýrslu stjórnar, engar ath.semdir komu og skýrsla samþykkt.
5. Arna lagði fram reikninga, Ásta Laufey er starfandi gjaldkeri en komst ekki á fundinn svo Arna las upp reikninga.
6. Spurt var um kostnað vegna aðalfundar, svar að kostnaður er v/ viðurkenningar og gjafa. Spurt um styrk til fimleikadeildar, við greiddum 5.000 kr á hvern iðkenda sem er að æfa á Hellu. Spurt um annað 500þ. , svar: póst kostn. kostnaður vegna taekwondoþjálfunar féll þarna undir þar sem þjálfunin var keypt sem þjónusta frá Umf. Selfoss, einnig er kostnaður v. heimasíðu þarna undir, badminton mót og fl. Spurt um styrktarsjóð, millifært á styrkjabók, virkjaður aftur styrktarsjóður sem var í minningu Ólafs Bjarnasonar, lagt inn á hann og verður framvegis millifært á þennan reikning 10% af lottótekjum. Styrktarbeiðnir hafa verið teknar fyrir á stjórnarfundum.
Reikningar samþykktir.
7. Fjárhagsáætlun aðalstjórnar Dímonar árið 2020:
Tekjur Gjöld
Lottótekjur 900.000
Félagsgjöld 350.000
Samstarfssamningur við Rangárþing eystra 4.200.000
Æfingagjöld 2.800.000
Óinnheimtar kröfur æfingagj. 67.000
Endurgreitt lán frá gallakaupasjóði 400.000
Óinnheimtar kröfur félagsgj. 564.100
Skattur til HSK 80.000
Greiðslur vegna sérsambanda 400.000
Kostnaður vegna viðurk. á aðalfundi 80.000
Mótakostnaður 50.000
Akstur á mót 100.000
Kostnaður vegna heimasíðu 50.000
Kostnaður vegna bókhaldsþjónustu 180.000
Kostnaður vegna íþrótta utan deilda 150.000
Laun og launatengd gjöld 7.000.000
Ýmis útgjöld 300.000
Ráðstöfun í útbreiðslu barna og unglingast. 600.000
9.281.100 8.990.000
Fjárhagsáætlun samþykkt.
8. Árgjöld hafa verið 1500kr. á ári, ekki tillaga um breytingu, innheimt á 2. ára fresti. Samþykkt óbreytt.
9. Viðurkenningar veittar á aðalfundi Dímonar fyrir árið 2019
Blak:
Við tilnefnum Lucile Delfosse blakkonu Dímonar 2019
Lucile er 28 ára gömul,hefur æft og spilað með okkur í Dímon-Heklu í 3 ár. Hún er vaxandi spilari hjá okkur og hefur tekið miklum framförum. Hún er fjölhæf og getur spilað miðju, kant, díó og libero.
Árið 2019 átti hún stóran þátt í því að B-liðið okkar varð í 2.sæti í 5.deild í Íslandsmóti og spilar því þetta keppnistímabil í 4.deild. A-liðið okkar varð HSK meistari með henni í vor. Og í haust spilaði hún með A-liðinu í Íslandsmóti sem er eftir 1.umferð í 1.sæti í 3.deild. Auk þessa tók hún þátt í ýmsum hraðmótum á árinu.
Glíma:
Viðurkenningu í glímu í flokki 12 – 13 ára drengja hlýtur Valur Ágústsson
Valur tók þátt i Grunnskólamóti HSK og Fjórðungsglímu Suðurlands. Valur mætir á allar glímuæfingar og er mikilvægur hlekkur í liðsheild Dímonar. Til hamingju Valur.
Viðurkenningu í glímu í flokki 12 – 13 ára stúlkna hlýtur Hildur Vala Smáradóttir
Hildur tók þátt i Grunnskólamóti HSK, Héraðsmóti HSK og Fjórðungsglímu Suðurlands. Hildur Vala er dugleg að mæta á glímuæfingar og er mikilvægur hlekkur í liðsheild Dímonar. Til hamingju Hildur Vala.
Viðurkenningarí glímu í flokki 13 – 14 ára stúlkna eru tvær að þessu sinni þær: Emilía Rós Eyvindsdóttir og Guðrún Margrét Sveinsdóttir.
Emilía Rós tók þátt i Grunnskólamóti HSK, Héraðsmóti HSK og Fjórðungsglímu Suðurlands. Emilía Rós er dugleg og metnaðarfull glímukona. Hún er mikilvægur hlekkur í liðsheild Dímonar. Til hamingju Emilía Rós
Guðrún Margrét tók þátt i Grunnskólamóti HSK, Héraðsmóti HSK og Fjórðungsglímu Suðurlands. Guðrún er dugleg og metnaðarfull glímukona. Hún er mikilvægur hlekkur í liðsheild Dímonar. Til hamingju Guðrún Margrét
Viðurkenning í glímu í flokki 13 – 14 ára drengja fær Tómas Már Rossel Indriðason.
Tómas tók þátt i Grunnskólamóti HSK og Héraðsmóti HSK. Tómas mætir á allar glímuæfingar og er mikilvægur hlekkur í liðsheild Dímonar. Til hamingju Tómas.
Viðurkenningarí glímu í flokki 14 - 15 ára stúlkna eru þær María Sif Rossel Indriðadóttir og
Jade Jóhanna McDevitt
María Sif tók þátt i Grunnskólamóti HSK, Héraðsmóti HSK. Hún er öflug í glímu og er í stöðugri framför. Hún keppti einnig í fullorðinsflokki í Skjaldarglímu Bergþóru og lenti þar í 3. Sæti. Til hamingju María
Jade Jóhanna McDevitt tók þátt i Grunnskólamóti HSK og Héraðsmóti HSK. Hún keppti einnig í fullorðinsflokki í Skjaldarglímu Bergþóru og lenti þar í 4. Sæti. Hún er öflug í glímu og í stöðugri framför. Hún er mikilvægur hlekkur í liðsheild Dímonar. Til hamingju Jade Jóhanna
Fimleikar:
Guðný Ósk Atladóttir hefur stundað fimleika um árabil hjá Dímon. Hún er dugleg að mæta á æfingar og leggur sig fram um að gera vel. Hún hefur sýnt miklar framfarir og veitum við henni viðurkenningu fyrir það.
Saga Ársælsdóttir, Fanndís Lárusdóttir, Pálína Bjarnadóttir, Nicola Lis Ólöf Brynjólfsdóttir, Þórunn Eyland og Hekla Margrét Margrétardóttir. Þessar stúlkur kepptu á sínu fyrsta Íslandsmóti í stökkfimi. Þær sigruðu með yfirburðum og urðu íslandsmeistarar í stökkfimi í c deild yngri. Við veitum þeim viðurkenningu fyrir góðan árangur.
Borðtennis:
Viðurkenningar í borðtennis hljóta að þessu sinni þau Óli Guðmar Óskarsson og Guðrún Margrét Sveinsdóttir.
Óli Guðmar hefur stundar æfingar mjög vel og hefur sýnt góðar framfarir á árinu. Hann tók þátt í Héraðsmóti HSK, Íslandsmótaröð aldursflokka, ásamt fleiri mótum á höfuðborgarsvæðinu. Til hamingju Óli Guðmar
Guðrún Margrét hefur stundað æfingar mjög vel og hefur sýnt góðar framfarir á árinu. Hún tók þátt í Héraðsmóti HSK , Íslandsmótaröð aldursflokka, þar sem hun sigraði í sínum aldursflokki.
Til hamingju Guðrún Margrét
Viðurkenningu fyrir framfarir og ástundun í borðtennis fær Stepan Vassiljev
Stepan stundar æfingar mjög vel og hefur sýnt góðar framfarir á árinu. Hann tók þátt í Héraðsmóti HSK, Íslandsmótaröð aldursflokka. Til hamingju Stepan.
Sund:
Sundviðurkenning Dímonar í unglingaflokki 2019: Lilja Sigríður Einarsdóttir
Lilja Sigríður er sundkona ársins 2019. Hún hefur æft sund frá því hún hóf grunnskólagöngu sína. Lilja Sigríður er með góða ástudun, sýnir framfarir, dugleg og áhugasöm.
Sund – fyrir ástundun og framfarir 2019: Oskar Bartosz Parciak og Eyþór Orri Eiðsson
Oskar og Eyþór Orri hafa sýnt miklar framfarir í sundi síðastliðið árið. Ástundun þeirra er mjög góð. Þeir fara ávallt eftir fyrirmælum, eru áhugasamir, jákvæðir og góðir sundmenn.
Frjálsíþróttir:
Frjálsíþróttadeild Dímonar veitir viðurkenninguna Frjálsíþróttamaður Dímonar 15-22 ára fyrir árið 2019. Birta Sigurborg Úlafsdóttir.
Árið 2019 keppti Birta á Héraðs-, Meistara-, Bikarkeppnum inn og úti, Unglingalandsmóti UMFÍ og keppti einnig á Gautaborgarleikunum síðastliðið sumar auk annara bætingamóta með mjög góðum árangri. Hún hefur æft með meistaraflokki HSK Selfoss og í frjálsíþróttaakademíu FSU og verið að bæta sig í sínum greinum.
Frjálsíþróttadeild Dímonar veitir viðurkenningu fyrir framfarir og mætingu 11-14 ára fyrir árið Emilíu Rós Eyvindsdóttur.
Emilía hefur verið dugleg að mæta á æfingar og keppt á héraðsmótum og meistaramótum inni og úti. Hún stendur sig vel á æfingum og hefur bætt sinn árangur í keppni.
Taekwondo:
Viðurkenningu í Taekwondo hljóta að þessu sinni Bjarki Rafnsson og Þorsteinn Ragnar Guðnason.
Bjarki Rafnsson hefur ef ég fer rétt með æft taekwondo í á 6. ár og stundað æfingar vel, fyrst á Hellu og svo hér hjá okkur í Dímon. Hann er metaðarfullur og leggur sig mikið fram. Hann lætur það ekki á sig fá þó iðkendur í eldri hóp séu því miður oft ansi fáir og heldur ótrauður áfram að bæta sig.
Frá því í haust hefur hann séð um þjálfun yngri hópsins með ágætum. Hann er mikilvæg og góð fyrirmynd yngri iðkenda og við erum afar stolt af honum. Sérstaklega langar okkur að nefna að hann hefur gert okkur mikinn greiða með því að sækja yngri iðkendurna í skjól á föstudögum og fylgja þeim niður í Hvol á æfingar. Það eru örugglega ekki allir 15 ára strákar sem myndu gera þetta og hversu skemmtilegt held ég að það sé fyrir krakkana að fá svona flottan ungan mann til að sækja sig! Geri aðrir betur.
Bjarki – innilega til hamingju með góða ástundun og framfarir og þakkir fyrir störf í þágu félagsins.
Þorsteinn Ragnar Guðnason hefur nú æft Taekwondo í 7 ár með mjög góðum árangri. Hann varð snemma mjög góður og einnig sem er mjög mikilvægt mjög áhugasamur og metnaðarfullur um allt sem tengist íþróttinni. Hann hefur nú sérhæft sig sérstaklega í poomsae eða formum.
Hann er nú á sínu þriðja ári í landsliðinu í poomsae /formum og æfir og keppir mikið. Á síðasta ári keppti hann á öllum mótum hér innanlands sem og NM. Hann fór einnig að eigin frumkvæði í einkakennslu til Ji Pyo, mjög færs þjálfara í Svíþjóð til að undirbúa sig sem best fyrir svartbeltispróf þar sem hann tók 2. dan (gullrönd nr 2) síðastliðinn desember.
Haustið 2018 var hann valinn til að keppa á HM í Taipai og fór í þá ferð með föður sínum þar sem hann og hópurinn stóð sig mjög vel. Nú í janúar keppti hann á NM í Noregi og á RIG (Reykjavík International Games) og náði þar gullverðlaunum í öllum þeim þremur greinum sem hann keppti í. Framundan á árinu er svo HM í Danmörku í lok maí.
Þorsteinn er nú orðinn okkar aðalþjálfari í taekwondo á Hvolsvelli og skipuleggur ásamt Bjarka æfingarnar undir handleiðslu meistara þeirra Daníels Jens Péturssonar hjá Umf Selfoss. Þorsteinn Ragnar hefur þurft að hafa töluvert fyrir því að stunda íþrótt sína og hefur þurft að sýna heilmikla útsjónarsemi og þolinmæði. Honum er mikið í mun að aðrir fái að kynnast þessari frábæru íþrótt og heldur okkur í stjórn Dímonar því vel við efnið að bjóða upp á æfingar hér í Hvolsvelli.
Hér hlýtur Þorsteinn viðurkenningu sérstaklega fyrir góðan árangur á mótum en einnig eins og við höfum nefnt hérna viljum við þakka honum fyrir hvatningu og störf fyrir félagið. Til hamingju Þorsteinn Ragnar.
Verðlaunahafar komu nú allir í myndatöku og síðan bauð fundarstjóri til kaffis.
10.
Stjórn Dímonar eftir aðalfund:
Formaður: Arnheiður Dögg Einarsdóttir Guðnastöðum S: xxxxxxx 8687708
Gjaldkeri: Christiane Bahner Vestri-Garðsauki S: xxxxxxx 8673440
Ritari: Inga Birna Baldursdóttir Seli S: 4878234 8624323
Meðstjórn.: Oddný Steina Valsdóttir Butra S: xxxxxxx 8650716
Meðstjórn.: Ólafur Elí Magnússon Króktún 9 Hv. S: 4878692 8486196
Til vara: Magnús Ragnarsson Gilsbakka 31 Hv. S: 4875503 8680546
Til vara: Anna Runólfsdóttir Fljótsdal S: 4878497 8645062
Til vara: Elísabet Lind Ingólfsdóttir Hvolstúni 32b Hv. S: xxxxxxx 8669005
Samþykkt tillaga.
11. Skoðunarmenn og varaskoðunarmenn:
Skoðunarmenn: Páll Eggertsson Kirkjulæk Fljótshlíð
Ólafía B. Ásbjörnsdóttir Gilsbakka 32 Hvolsvelli.
Vara skoðunarmenn: Garðar Guðmundsson Hólmi A-Landeyjum
Sigurjón Sváfnisson Njálsgerði 12 Hvolsvelli.
Þau samþykkt.
12. Hsk þing, vísað því til stjórnar að manna þingið.
13. Voru kynntar tillögur í fundarboði á dimonsport.is, að félagsgjöld innheimtist frá 18 ára aldri en ekki 16 ára.
Tillaga samþykkt.
14. Arna bauð fundargestum að ræða önnur mál. Rafn Bergson, þakkaði stjórn gott starf og vildi gefa þeim gott klapp. Arna skýrði frá að þau hefðu fengið ath. semdir um of mikið í gangi, mætti ræða það frekar, spurði út í sal hvort þeim dytti eitthvað í hug. Þakkaði Ginu fyrir störf fyrir félagið. Þakkaði Ástvaldi og Lísu fyrir þeirra störf í gjaldkerastarfinu. Bauð Christiane Bahner og Oddný Steinu í stjórnina. Hlakkar til að starfa með þeim.
15. Fundi slitið kl: 15:20.
Góð mæting á fundi, um 60 mans.