Stjórnarfundur, febrúar 2023
Febrúar fundur íþróttafélagsins Dímonar
Haldinn í Hvolnum miðvikudag 01.02.2023 kl 19.00
Mættir Ólafur Elí, Sigurður Kristján Jensson, Eyrún María Guðmundsdóttir, Christiane Bahner og Esther Sigurpálsdóttir
Fréttir deilda
Frjálsar: HSK mót 11 – 14 ára unnum tvo flokka af fjórum flokkum vorum með keppendur í þrem flokkum samtals 10 keppendur. Meistaramót 15 til 22 ára þar setti Ívar Ylur mótsmet og HSK met í grind fyrir 15 ára. Næst á dagskrá er meistaramót 11 – 14 ára í Laugardalnum 11 – 12 feb. skráning á mótið er hafið.
Kvennablakið: Það helsta af kvennablakinu er að 2.umferð í Íslandsmóti var spiluð helgina 13-15 jan. 2.deildar liðið er eftir hana í 9. sæti og 4.deildarliðið í 10.sæti.
Nú tekur við að spila loka umferð sem er þannig að neðri liðin sex spila um 7-12 sæti og þú tekur ekki með þér stig úr fyrri umferðum í þessa loka umferð. Og verður þetta því barátta hjá báðum liðum að halda sér uppi en 3 lið falla.
2.deild verður spiluð á Húsavík 17-19 mars og 4.deildin í Reykjavík sömu helgi.
Blakkona HSK verður úr okkar röðum hún Ingibjörg Heiðarsdóttir. Aðalfundur deildarinnar verður fimmtudaginn 16.feb kl 20.30 í Kanslaranum Hellu.
Körfubolti: KKD Dímon hélt mót síðustu helgi 28.janúar sem bar heitið Lava mótið. 17 lið tóku þátt og voru hátt í 100 iðkendur samtals í þeim liðum. DGH á 6 leiki eftir í deildinni og á en mikla möguleika á að komast í úrslitakeppnina.
Blak: Æfingar á fullu, góð mæting
Glíma: Æfingar í gangi, mæting fín
Badmington: Æfingar í gangi, fullt hús spilað á 7 völlum
Borðtennis: stefnt er að því að halda aðalfund 8. febrúar kl 19.30, 20 krakkar mæta á æfingar en mörg hver mjög ung, verið er að vinna í að fá fleiri inn til að aðstoða við þjálfun á föstudögum.
Stjórn Dímonar
Sigurður formaður Dímonar ræddi við fimleikadeildina okkar til að setja sig í samband við fimleikadeildina á Hellu og athuga hvort hægt sé að vinna saman eða fá þjálfara til okkar.
Aðalfundur Dímonar verður haldin sunnudaginn 12. mars kl: 15
Reikningar aðalstjórnar eru klárir fyrir skoðununarmenn reikninga