Aðalfundur 2023
Aðalfundur íþróttafélagsins Dímonar haldinn í Hvolnum 12. mars 2023
1. Fundarsetning
Formaður félagsins Sigurður Kristján Jensson setur fund og býður fundagesti velkomna.
2. Skipun fundarstjóra og fundaritara
Sigurður stakk upp á Oddný Steinu Valsdóttur sem fundarstjóra og Christiane Bahner sem fundarritara. Samþykkt samhljóða.
3. Fundargerð síðasta aðalfundar lögð fram til samþykktar
Fundargerð síðasta aðalfundar hefur verið aðgengileg á heimasíðu Dímonar frá síðasta aðalfundi og liggur hér frammi útprentuð.
Fundarstjóri leitar eftir athugasemdum við fundargerð, engar athugasemdir voru gerðar. Skoðast því fundargerð síðasta fundar samþykkt.
4. Skýrsla stjórnar
Sigurður formaður les upp skýrslu stjórnar.
Skýrsla stjórnar 2022
Starfið hélst stöðugt seinni part árs. Iðkendur æfa eina og jafnvel mun fleiri greinar í viku en sama gjald er tekið fyrir það. Greinum hefur fjölgað síðustu misseri en því miður duttu fimleikar út þennan veturinn.
33 æfingar eru í hverri viku í 6 deildum og heldur aðalstjórn uppi 3 af þeim æfingum. Ofan á það er Meistarflokkur í blaki og Ringó fyrir 16 ára og eldri á föstudagskvöldum.
Dímon er rekið með styrk frá sveitafélaginu, iðkendagjöldum, félagsgjöldum og söfnunum. Aðalstjórn safnar hólkum frá bændum og deildirnar safna dósum og flöskum. Kemur þetta út í litlum aukagjöldum hjá foreldrum og forráðamönnum. Ásamt þessu fær félagið tekjur af getraunum og lottó.
Með sjálfboðaliðum helst félagið á floti, hvort það er að telja dósir,skutla, dæma eða vinna í sjoppu þá er það ómetanlegur stuðningur við samfélagið og er ekkert meira hvetjandi fyrir iðkendur en að foreldrar sýni áhuga á starfinu.
Aðalstjórn fundaði einu sinni í mánuði og verður því haldið áfram. Formenn deilda eru boðaðir á fundina og er skráð hvað er að gerast hjá þeim reglulega.
Árið 2022 voru vel yfir 200 iðkendur og bauð Dímon upp á 9 íþróttagreinar ásamt íþróttaskóla og leikjanámskeið.
HSK skýrsla
Íþróttafélagið Dímon
Aðalfundur félagsins var haldinn 4. mars 2022. Stjórn félagsins er þannig skipuð; Formaður: Sigurður Kristján Jensson, Gjaldkeri: Christiane Bahner. Ritari: Esther Sigurpálsdóttir Meðstjórnendur: Ólafur Elí Magnússon og Oddný Steina Valsdóttir. Varamaður: Ragnar Jóhannsson. Fulltrúar unga fólksins: Veigar Páll Karelsson og Tumi Snær Tómasson.
Árið fór hægt af stað en hélst stöðugt seinni hlutann. Mót hafa verið sótt og gengið nokkuð vel þá sérstaklega í frjálsum þar sem mörg verðlaun hafa verið unnin.
Félagið býður upp á fjölmargar greinar fyrir yngri iðkendur 6 til 15 ára, íþróttaskóla fyrir leikskólaaldur. Einnig er Ringo spilað alla föstudaga fyrir 16 ára og eldri og Meistaraflokkur kvenna í blaki fóru upp um deild og urðu þær HSK meistarar á árinu.
Félagið hefur fjölgað æfingum mikið og endurnýjaði fyrirmyndafélag ÍSÍ á árinu.
5. Reikningar félagsins.
Christiane Bahner gjaldkeri fór yfir skoðaða reikninga félagsins.
Ársreikningur aðalstjórnar íþr.f. Dímonar 2022 |
||
Tekjur |
Gjöld |
|
Styrkur frá Rangárþingi Eystra |
4,494,296 |
|
Útbreiðslustyrkur HSK |
1,364,737 |
|
Æfingagjöld |
6,304,649 |
|
Félagsgjöld |
522,600 |
|
Fjáröflun |
503,400 |
|
Íslenskar getraunir |
215 |
|
Styrkur Umf. Baldur |
578,808 |
|
Endurgr. Fimleikadeild |
121,235 |
|
Kostnaður vegna aðalfundar |
||
HSK |
89,415 |
|
Kostnaður Valitor |
34,730 |
|
Sérsambönd |
25,000 |
|
Mótagjöld |
22,000 |
|
Auglýsingakostnaður |
83,502 |
|
Bókhaldsþjónusta |
153,388 |
|
Annað |
130,570 |
|
Kostnaður vegna leikjanámskeiðs |
44,500 |
|
Laun og launatengd gjöld |
11,249,275 |
|
Bankakostnaður |
37,177 |
|
Styrkir til rafíþróttadeildar |
560,000 |
|
Innvextir |
82,880 |
|
Fjármagnstekjuskattur |
18,233 |
|
Samtals |
13,972,820 |
12,447,790 |
Inneign á reikningi 01.01.2022 61610 |
2,731,376 |
|
Inneign á reikningi 31.12.2022 61610 |
4,035,054 |
|
Inneign á reikningi 01.01.2022 836 |
29,186 |
|
Inneign á reikningi 31.12.2022 836 |
18,542 |
|
Inneign á reikningi 01.01.2022 370866 |
2,227,098 |
|
Inneign á reikningi 31.12.2022 370866 |
2,273,313 |
|
Inneign á reikningi 01.01.2022 1558 |
0 |
|
Inneign á reikningi 31.12.2022 1558 |
185,781 |
|
18,960,480 |
18,960,480 |
|
Gjöld umfram tekjur |
1,525,030 |
|
Christiane L. Bahner, gjaldkeri aðalstjórnar Íþr.fél. Dímonar |
Fundarstjóri gefur orðið laust varðandi skýrslu stjórnar og reikninga félagsins.
Fyrirspurnir úr sal, en engar athugasemdir.
Bar þá fundarstjóri skýrslu stjórnar og reikninga félagsins upp til samþykktar.
Samþykkt samhljóða.
6. Fjárhagsáætlun næsta árs.
Gjaldkeri fer yfir fjárhagsáætlun fyrir næsta ár.
7. Ákvörðun um árgjöld.
Fundarstjóri kynnir tillögu stjórnar að óbreyttu félagsgjaldi 1500 kr á ári og verði innheimt á 2 ára fresti.
Fundarstjóri gefur orðið laust varðandi fjárhagsáætlun og tillögu um árgjöld, engar athugasemdir.
Fundarstjóri ber fjárhagsáætlun og tillögu varðandi árgjöld upp til samþykktar, samþykkt samhljóða.
8. Verðlaunaafhending.
Viðurkenningar sem við veitum í dag eru byggðar að mestu á ástundun æfinga og framförum.
Badminton: Ívar Ylur Birkisson
Blak: Guðný Ósk Atladóttir
Borðtennis: Emma Guðrún Bahner Jónsdóttir og Kristján Birgir Eggertsson
Glíma: Jens Eyvindur Ágústsson og Valur Ágústsson
Körfubolti: Ívar Ylur Birkisson
Ringó: Sigurþór Árni Helgason og Þorgerður Rán Þorkelsdóttir
9. Stjórnarkjör. 5 manna stjórn, 3 til vara.
Kjör stjórnar: Fundarstjóri fer yfir tillögu stjórnar að stjórn Dímonar
Sigurður Kristján Jensson formaður
Esther Sigurpálsdóttir ritari og varaformaður
Christiane L. Bahner gjaldkeri
Ólafur Elí Magnússon meðstjórnandi
Oddný Steina Valdóttir meðstjórnandi
Fundarstjóri leitar eftir öðrum framboðum, engin framboð, stjórn kjörinn með lófaklappi
Kjör varamanna: Fundarstjóri fer yfir tillögu stjórnar af varamönnum
Ragnar Jóhannsson
Sigurþór Árni Helgason, fulltrúi unga fólksins
Tillaga samþykkt með lófaklappi.
10. Kjör tveggja skoðunarmanna og tveggja til vara.
Fundarstjóri fer yfir tillögu stjórnar
Páll Eggertsson og Ólafía B. Ásbjörnsdóttir sem skoðunarmenn
Garðar Guðmundsson og Sigurjón Sváfnisson sem varamenn
Tillaga samþykkt með lófaklappi.
11. Kjör fulltrúa á HSK þing.
Dímon sendir þrjá fulltrúa fyrir sig á þingið. Fundarstjóri óskar eftir framboði, engin framboð. Ákveðið var að stjórn félagsins taki þetta fyrir á fundi og finni fulltrúa
Samþykkt samhljóða.
12. Önnur mál.
Fundarstjóri opnar á umræðu um hvort fundarmönnum lítist á að stofna nýtt sameiginlegt félag með örðum íþróttafélögum í sýslunni og þá hvort áhugi sé á að sveitarfélögin leiði þá vinnu í samstarfi við íþróttafélögin.
Frjálsar umræður.
13. Fundi slitið.