Nú er síðasta vika samfellu fyrir jól. Það þýðir að frá og með næsta mánudegi breytist skólaakstur þannig að ekki er keyrt heim kl 17. Æfingar sem fara þá í jólafrí eftir þessa viku eru blak, badminton, fjálsar yngri, borðtennis, styrkur 5.-7. bekkur, glíma og taekwondo.
Áfram verða frjálsíþróttaæfingar fyrir 5.-10. bekk og einnig lyftingaæfingar, styrkur 8.-10. bekkur, alla veganna fram að jólafríi í skólanum, jafnvel lengur.
Þjálfarar í öðrum greinum munu tilkynna á facebook-síðum deilda hvort æfingar halda áfram í desember.